Sunday, November 26, 2006

Ekki !!!



Er þetta ekki atistic mynd :P hendin á mér ítur út einsog á gamalmenni og ég er með svona fake þjáningarsvip einhvernveiginn..!! haha það er fyndið!

(er sko að athuga hvort ég geti ekki sett inn myndir :P lolz)
agh mér finnst ekki gaman að flytja, er að pakka öllu niður og svona og æjj még bara finnst það svo skrítið sérstaklega þegar ég var lítil átti ég hvergi heima, við leigðum alltaf bara og það var svona einsog að búa í ferðatösku... og satt að segja finnst mér það ekkert slæmt, núna vakna bara svo margar minningar eitthvað og vá... og ég er að finna svo mikið af einhverju sem ég var búin að geyma, Im high on memory :P lol
En já mér leiðist svo mikið að taka til og pakka niður að ég á örugglega eftir að blogga 4 sinnum í viðbót bara í dag og fara svo í blogg frí!!!!
:P
Svo veit ég ekkert hvað ég á að blogga um.
Kannski ég tali um nýju fartölvuna mína sem stelur af mér svefn!! Sko þannig er í pottinn búið að ég sef voða lítið eftir að ég fékk þessa tölvu mína og sérstaklega þar sem ég fæ humm internetiðð lol þeir sem vita ekki hvernig ég fæ það spyrjið mig þa´:P lolz það er fyndið og ég nýti mér það einsog ég get!! :D:D Og þess vegna sef ég ekkert, ,horfi á sjónvarpið gegnum tölvuna og allt mögulegt!
Og já blogga meira en ég ætti að gera þegar ég á að vera að gera aðra hluti einsog núna t.d.


já ok ég ætla að hætta að vera háð tölvunni í augnablik og fara að læra:P zomfg! ég sagði læra! meinti taka til, þetta er einhverskonar svona uhhh hvað heitir að vani að segja núna er ég hætt þessu og farin að læra...mmm
bæbæ
Arena
jÁ þþetta ver hálf leim að setja svona á síðuna sína en ennþá miera leim að einginn nema björn skildi ggera þetta fyrir mig1!!! I see clearly now :P En já annars er mjög lítið að frétt af mér, var í keflavík í gær í afmæli og um daginn dróg ég elísabetu, árna og rakel á herra ísland :P Það var gay!!! En í næstu viku verður "SVONA" mikið að gera og á örugglega ekki eftir að hafa tíma til að gera mest mikið, er líka að fara í ökuskólann alla næstu viku!!!! ZOMFG!
Þannig ég ákvað að semja líka lítið ljóð (hef ekki samið ljóð síðan í 9 bekk btw)

Í upphafi morguns
árla dags
kemur upp sólin
en sest hún þó strax
en með lítið sem ekkert
smán sem ekki sést
lætur hún sem ekkert hafi gerst


ZOMFG þetta var ekki gott, verð að æfa mig :S is skammastin mín :P lolz
verð að fara að pakka, er að flytja !!!

Arewnaren

Friday, November 24, 2006

Jájá okey ég veit þetta er ömurlegt en ég ætla SAMT að gera þetta :P vil að þið fyllið þett út fyrir mig! Finnið tíma til þess!! NÚNA! okí :D jjá ;)

1. miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Dirty or Clean:

8. Tattoo eða göt:

9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

17. Getum við hist og bakað köku?

18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?

22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?

27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?

28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?


gerið þetta for ME ok!! ARENA!! LOL!!!

Wednesday, November 22, 2006

Haha, núna sit ég í dönsku tíma en þar sem ég á laptop þarf ég ekki að vera að læra!! djöfulsins kostur er þetta!!! :D lúxus að eiga tölvu :D:D en jamm ég ætlaði nú að tala um gærdaginn, í gær fórum við með carpe noctem í stúdíó, ég nottla umboðsmaðurinn, þannig ég var búin að redda ágætis stúdíói og svona :P Við fórum í stúdíóið um fimmleitð og vorum þar til 22!! Ég og rakel dottuðum víst smá, en vá það hefði verið svo gaman að hafa myndavél með!! Svona fyrsta alvöru stúdíó ferðin!!! ZOMG!!! En það verður bara næst sem við seljum svo þegar þeir verða frægir undir yfirskriftinni "fyrsta stúdíóferðin" En þetta var ekki allt bara dans á rósum!! nei, hann björn ákvað að "vígja" fyrstu stúdíó ferðina með því að brjóta ljósakrónuna í stúdíóinu!!!!!! Og það er ekki allt og sumt!! Hann ákvað í leiðinn að ætla að drepa mig!!!! Setti glebrot í snakkið sem ég svo át og fann svo glerbrot í munninum á mér!! HAHAHAHAAH það var ógeðselga fyndið, að vera að bryðja eitthvað svona stórskrítið, en ég mun aldrei aftur borða gler!!! Mundu það björn, þú munt aldrei ná að drepa mig!!! HAHA! En það var ógeðslega gaman að faara svona ís túdióið og heyra strákana spila en etir að hafa heyrt lagið hundrað milljón sinnum þá svona varð maður soldið þreyttur! :P ;O) en það verður þess virði á endanum, sérstaklega þegarþað verður full mixað! Það verður kúl :D:D
Vona bara að þetta leiði til þess að strákarnir verið frægir og ég græði péninga sem umboðsmaður, :D:D HAHA
Ég ætal mér sko 5 til 10 prósent af gróða ójá! Það kosta sitt að hafa umboðsmann :P thíhí;)
En jámm kannski ég ætti að fara að læra smá ;)
Bæjó

Arena

Monday, November 13, 2006

Haha núna ætla ég alltaf að blogga í svörtu og þið þurfið bara að vera ógeðslega klár til þess að fatta það!!!! Annars hef ég ekki frá miklu að segja, bara búið að vera frekar rólega helgi ef maður sér það þannig, kannski ég ætti að slaka aðeins á á nokkrum sviðum en :P maður verður að lifa á meðan maður er ungur. Ég fór á myrkramessuna í gær, það var frekar gaman, mér finnst svo gaman að dansa, ég veit ekki afhverju en síðan ég kom frá suður ameríku elska ég að dansa. Ég einhvernveginn sé fyrir mér að þegar ég dey eigi ég eftir að vakna uppa aftur dansandi í einhverju satanísku ritúali allt þar til að það er ekkert meir... eða kannski ekki.
Ég er alltaf að spá hvað ætli sé eftir dauðann, ætli maður fæðist ekki aftur eða verðu eitthvað annað efni, erum við ekki bara efni? Einvherskonar efna samsetning og svo brotar það niður og verður annað efni, efni er lifandi, ég er lifandi, þá dey ég aldrei.
Ekki það að ég vilji lifa að eilífu en ég skil ekki þessa hræðslu við dauðann, við erum bara efni, efni sem aldrei deyr, við brotnum kannski niður, skiljumst að en myndum eitthvað annað. En hvað verður þá um vitundina? Er hún alltaf til, hefur efni vitund? Hvað er sál? Er það bara efni sem við þekkjum ekki? Einhverskonar efni sem er alltaf að leita að svörum við spurningum? Eða erum við bara það sem við viljum og sjáum Það sem við viljum, kannski er heimurinn bara hugmynd, eitthvað sem er ekki til... úfff mér finnst ég vera farin að skilja mig, mér finnst ég vera farin að meika sens svo ég ætla að hætt áður en ég rugla sjálfa mig aftur :P

En að skemmtilegri hlutum, nú ætla ég bráðum að halda litlu jól, eða kannski ekki bráðum en ég mun halda litlu jól rétt fyrir jólin :D Þá verður ógeðslega gaman og ég ætla að gera lambalæri eða svínahrygg! :P bæði er gott, eða kannski gerí ég bara bæði þar sem ég held að allir borði soldið mikið :P Ok kosningar, hvort viljið þið svín eða lamb? Eða bara kalkún? (er kannski of snemmt að pæla í þessu? en sko mig vantar tíma til að æfa mig og svona :P ) en þið verði að segja hvað ykkur finnst betra, eða bara bæði betra

En ok núna er ég hætt
Bless bless og veriði Hress

Arena

Friday, November 10, 2006

HAHAH ég ætla að byrja þetta blogg á mjög fyndnum hlut.. semsagt ég var að gera verkefni með honum steinari, félagsfræði verkefni og við vorum að rífast um golfstrauminn og ég sagði að golfstraumurinn kæmifrá mexícóflóa en svo veit ég ekki alveg hvernig það gerðist en þá spurði steinar er ástralía ekki þarna hjá þýskalandi!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! OMG LOL ROFL!!!!!!!!!!!!!!!!! Thíhí. Jamm ok sem sagt ég sagði NEI.......... ástralía er LANGT frá Þýskalandi!!!!! LOL en já.. svona er að vera Steinar.
En já svo var ég útí sjoppu áðan og Árni keypti handa mér sleikjó :D jeiii Takk árni. Ég veit ég hef ekkert til að blogga um svo ég segi bara eitthvað.. :p Svo er ég kannski að fara á myrkramessuna í MK a sunnudafskvöldið og síðan á hugsanlega að sýna strákunum í carpe noctem hljóðverið hjá Bjögga, veit ekki hvernig þeim á eftir að lítast á það en jamm vona að þeim líki það og vona að það sé hægt að nota það eitthvað. En annars er ég bara ennþá að hanga uppí skóla, kom í snjógalla ís kólann í dag... vá ég er enn að hanga uppí skóla á föstudegi... djöfull á ég mér yndislegt líf.. sérstaklega þar sem ég skrópaði í síðasta tíma! úff..... En ætli ég fara ekki að kíkja á óveðrirð sem er víst úti :P verð að fara að koma mér heim :D :S

Tuesday, November 07, 2006

Skóli.... Próf.. arg ég er að verða geðveik, ég hef ekki tíma til að anda en samt er ég alltaf að bæta við mig fleiri hlutum til að gera... afhverju?? er ég vinnualki?? Bara þegar ég hef ekkert að gera finnst mér það svo hræðilegt að ég verð að finna mér milljón hæuti til að gera.. hef t.d. ekki tima til þess að vera hérna núna að skrifa þetta því ég er að fara í ræktina!!! Núna, á eftir að fara heim og vera mætt klukkan 4!!!!! OMG!!! ég hef ekki tíma til þess að gera neitt... ég er að missa mig!! :P en það er gaman, ef ég hefði ekkert að gera yrði ég ennþá geðveikari!!! ahhh :P en ok jámm já ok hhah já uuhh já ... mmm. jáj .. haha ok ég verð að hætta þessu.
Og yfir í rólegri nótur... ARGGGGG ok jámm
Blogga betur seinna þegar ég er rólegri, held að það sé góð hugmynd, hef frá fullt af hlutum að segja en betra að ég flýti mér í strætó núna!!!
Okí bæjó!
;)

Yfir og út
Arena

Friday, November 03, 2006

Uppá síðkastið hefur mig verið að dreyma alveg ótrúlega skrítna hluti en núna síðustu nótt var það allra hræðilegasti draumurinn, mig dreymdi að ég vaknaði heima h já bjögga og systu semsagt pabba litla bróðurs míns og mömmu hans og ég bara gekk inn í eldhús og þá sagði bjöggi mér að ég væri veik, með minnislaeysis veiki og ofsa paranoiu. Svo ef ég varð of paranoid þá fékk ég útbrot og hitnaði öll einsog ég væri að sjóða yfirum en það hræðilegasta var að hann sagði mér að ég hafi verið svona lengi, í mörg ár og ég leit á dagatalið og það var árið 2037!! Hugsið ykkur að vakna einn daginn og árið er 2037 og það s+íðasta sem þú manst var þegar þú sofnaðir 2006. Alltí einu er lífið bara allt farið og þú vilt ekki að þetta sé svona, það er ekkert sem þu getur gert og veist að það er einhvernveginn allt búið, þetta er bara ekkert líf. Mér leið samt bara svona einsog ég er en ég þorði ekki að kíkja í spegil, þetta er án efa eitt það ógeðslegasta sem mig getur dreymt, ég veit ekki hvaðan þetta kom en mér líður en hræðilega útaf þessu, ég get ekki hugsað um annað. Ég bara skildi ekki hvernig ég gæti hafa lifað öllu lífinu án þess að vita af því!! Mér fannst allt bara verða svo tilgangslaust og ég varð svo hrædd.... Ef þetta kemur fyrir mig í alvöru held ég að það væri betra að bara deyja en lifa svona!

En nóg um leiðinlega drauma, ég er búin að vera á fullu í stuttmyndagerð og kökubakstri síðastliðna daga, ekki búin að fá mikinn tíma til að gera nokkuð annað, heimalærdómurinn að vera eftirá svo ég þarf að fara að taka mig á, er samt að passa að ofkeyra mig ekki því ég er líka að vinna á fullu og svona. Það var ógeðslega gaman í gær að baka köku með ara og árna :D við bökuðum klessu köku sem var ógeðslega góð en alveg fáránlega mikill sykur í henni, við settum líka meiri sykur í hana en á að gera og minni púðursykur, svo settum við litarefni útí hvíta kremið... :P hehe það var fyndið þó það kom kannski ekki svo flott út, lærði það að það á bara ekki að blanda saman og mörgum litarefnum :P eða bara ekki blanda saman litarefnum almennt :D :P hehe

En jæja, ætli ég segi þetta ekki gott í dag, vona að þessi færsla heppnist þar sem ég skil ekki alveg þett blogg, kannski ég skipti aftur því ég á alltaf í vandræðum með að loga mig inn og svona og liíka að búa til nýja færslu.... :P

En við sjáum til

Yfir og út
Arena